Fíkniefni og forvarnir, handbók fyrir heimili og skóla, var gefin út 2001 en þar var á ferðinni í fyrsta skiptið, heildstætt rit um áfengis- og fíkniefnamál og forvarnir frá sjónarhóli 30 sérfræðinga.
Verkefnastjóri FOMS annaðist útgáfu bókarinnar, sá um fjármögnun og dreifingu bókarinnar árin 2001 – 2003. Bókin var prentuð í 8000 eintökum og dreift til skóla, stofnana, á fjölmörg heimili, til fyrirtækja og í flest bókasöfn landsins.
Hér má nálgast 3 helstu kafla bókarinnar en mikið af því efni hefur staðist tímans tönn þegar kemur að áhrifum vímuefna á einstakling og samfélög.