VIKA 43 2024:
Samtakamáttur foreldra er lykill að góðum vímuvörnum
5 ráð til foreldra:
Fjölga samverustundum með unglingum
Halda reglur um útivistartíma
Leyfa ekki eftirlitslaus partí
Kaupa ekki áfengi fyrir unglinga
Þekkja vini og foreldra unglingsins
Samstarfsverkefnið Vika 43 (vímuvarnavikan) var stofnað af félagasamtökum árið 2004. Vika 43 verkefninu voru sett skýr markmið frá byrjun:
1 Vera vettvangur fyrir samstarf félagasamtaka um að vekja athygli á áfengis- og vímuefnamálum, einkum forvörnum.
2 Varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og það starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka.
3 Vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum.
4 Virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfi.
Í þessari árlegu viku er vakin athygli á því hvert stefnir í áfengis- og vímuefnamálum. Í Viku 43 er sjónum einkum beint til foreldra og forráðamanna barna, hlutverks þeirra og ábyrgðar.
Frá upphafi hafa umfjöllunarefni vikunnar verið fjölbreytt og áhugaverð. Fyrstu fjögur árin nefndist verkefnið „Vímuvarnavikan“ en árið 2008 varð ákveðið að festa hana í sessi og hún skildi haldin í 43. viku ár hvert og nefnd Vika 43 síðan. Frá 2016 hefur Viku 43 ekki verið gert eins hátt undir höfði og efni stóðu til en vonandi verður bragabót gerð á því ástandi á næstu misserum.
Frá fyrstu vikunni í október 2004 hefur mikið vatn runnið til sjávar og á þessum tíma komið í ljós mikilvægi þess að grasrótin sé virk og starf hennar og hlutverk sýnilegt. Áherslur hverrar viku hafa sýnt fjölbreytta aðkomu frjálsra félagasamtaka að vímuvörnum og hvernig framlag þeirra getur skipt sköpum þegar unnið er að sameiginlegum markmiðum samfélagsins; að draga úr skaðsemi vímefna.