Gleðjumst allsgáð!
1.
Viðhorf foreldra hafa mikil áhrif á vímuefnaneyslu barna.
Vinnum gegn neyslu vímuefna meðal barna og ungmenna með því að sýna árvekni:
– Kaupum ekki áfengi fyrir börn og unglinga
– Styðjum börn og ungmenni til þroskandi og uppbyggilegra viðfangsefna
– Verjum tíma með börnum okkar
– Verum góðar fyrirmyndir
– Tökum skýra afstöðu gegn vímuefnaneyslu barna
Rannsóknir sýna að tengsl eru á milli ýmissa neikvæðra hliða áfengis- og vímuefnaneyslu og þess að hefja neyslu áfengis á unga aldri.
Áfengisneysla eykst verulega frá vori síðasta bekkjar í grunnskóla og fram á haust fyrsta bekkjar í framhaldsskóla:
– Meiri líkur eru á vandamálum í æsku, s.s. samskiptavanda við foreldra og fjölskyldu
– Meiri líkur eru á vandamálum tengdum námi og skólagöngu
– Meiri líkur eru á neyslu ólöglegra vímuefna
– Meiri líkur eru á misnotkun og mikilli og skaðlegri áfengisneyslu á fullorðinsaldri
2.
Akstur undir áhrifum áfengis
eða vímuefna er ein af þremur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni. Auk þess verða margir fyrir alvarlegu heilsutjóni, jafnvel ævarandi örorku, vegna ölvunaraksturs:
– Ökumenn hafið í huga að ekki er hægt að flýta fyrir niðurbroti vínanda í blóði með neinum hætti
– Kaffidrykkja, köld sturta, líkamsæfingar eða annað slíkt leiðir ekki til þess að það renni hraðar af fólki
– Ófrávíkjanleg regla ætti að vera að aka aldrei undir áhrifum vímugjafa
– Geymum bílinn heima, fáum far með einhverjum sem er allsgáður eða tökum leigubíl
– Setjumst aldrei í bíl með bílstjóra undir áhrifum vímuefna
– Tilkynnum vímuakstur til lögreglu
3.
Ölvun og vímuástand slævir dómgreind,
dregur úr hæfni til að draga ályktanir og hugsa rökrétt.
– Vímuð manneskja getur orðið sjálfum sér og öðrum til mikils ama og verið
hættuleg
– Vímuástand býður margs
konar hættu heim og auknum líkum á slysum og ofbeldi
Sýnum ábyrgð og árverkni á
hátíðum sumarsins
Verkefnið, Gleðjumst allsgáð í sumar, hóf göngu sína árið 2012 og hefur síðan þá beinst að þrem þáttum vímuefnaneyslu yfir sumartímann:
1. Unglingadrykkja
2. Ölvunarakstur
3. Ölvun á almannafæri
Hvatningaborðar verkefnisins eru birtir á samfélagsmiðlum og veffréttaveitum og vísa á heimsíðuna þar sem fólk er hvatt til árvekni og ábyrgðar yfir sumartímann.
Hvataborðar 2024:
Þeir sem styrkja verkefnið sumarið 2024