Mikil umræða hefur átt sér stað á Alþingi Íslendinga á vormánuðum um lögleiðingu vímuefna og forvarnir. Sitt sýnist hverjum og á lokadögum þingsins var ljóst að ekki voru gerðar neinar veigamiklar breytingar á lögum um sölu og neyslu ólöglegra vímuefna. Viðhorfin voru bæði þvert á stjórnamálaflokka og einstaklinga innan hvers flokks. Hér er samantekt um viðhorf og afstöðu flokkanna og þeirra þingmanna sem tjáðu sig um málið í þingræðum eða greiðaskrifum með þeim frumvörpum sem ætlað var að kollvarpa ríkjandi fyrirkomulagi fíkniefnamála.