You are currently viewing Telja netverslun Hagkaupa með áfengi ólöglega?

Telja netverslun Hagkaupa með áfengi ólöglega?

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa birt greinar um nýjasta útspil kaupmanna við fjölgun útsölustaða á áfengi og telja netverslun Hagkaupa með áfengi vera brot á lögum um einkasölu ríkisins. Mikil umræða er um þetta mál á samfélagsmiðlum og foreldrasamtökin hafa birt borða þar sem framtakinu er mótmælt; „Hagkaup er ekki einhver bílskúrssala úti á Granda. Hagkaup er rótgróið og er… var virðulegt fyrirtæki sem að stórum hluta er í eigu lífeyrissjóðanna, þ.e. okkar. Nú ætla Hagkaup að hefja ólöglega áfengissölu og bera fyrir sig persónulegum og pólitískum skoðunum forsætis – og dómsmálaráðherra í þeim efnum? Hvorugt þeirra hefur lýsti yfir að slíkt athæfi sé löglegt. Þvert á móti.“

Árni Guðmundsson er formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum

Enn segir í erindi samtakanna; „Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hvetja landsmenn til þess að sýna hug sinn í verki gangvart svona lögleysu og beina viðskiptum sínum annað. Virðingarleysi og hroki fyrirtækisins gagnvart lögum, opinberum lýðheilsumarkmiðum og vernd barna og ungmenna er fyrirtækinu til skammar. Það ekki síður sorglegt, siðlaust og einstaklega óviðeigandi að lífeyrisjóðirnir okkar séu viðriðnir þessa brotastarfsemi.
Sýnum hug okkar í verki.“

Deila