You are currently viewing Viðvörun um tengsl krabbameins sett á áfengisvörur
Vivek Murthy er landlæknir í Bandaríkjunum

Viðvörun um tengsl krabbameins sett á áfengisvörur

Landlæknir Bandaríkjanna segir áfengi vera meðal helstu krabbameinsvalda í landinu og vill af þeim sökum að áfengir drykkir verði merktir með viðvörun um krabbameinsvalda líkt og gert er með sígarettur. Ekki hefur áfengið áður verið merkt með viðlíkum viðvörunum um heilsuskaða áfengisins.

Vivek Murthy, landlæknir Bandaríkjanna, sagði í yfirlýsingu að áfengisneysla yki líkur á að minnsta kosti sjö gerðum krabbameins, þar á meðal brjósta-, ristils- og lifrarkrabbameini og að áfengisneyslu sé í þriðja sæti í Bandaríkjunum, á eftir tóbaki og fitu, yfir helstu valda krabbameina og sem hægt væri að fyrirbyggja

Auk þess að vilja setja krabbameinsmerkingar á áfenga drykki vill hann einnig að ráðleggingum um áfengisneyslu verði breytt. Í núverandi ráðleggingum er mælt með að karlar drekki ekki fleiri en tvo áfenga drykki á dag og konur ekki fleiri en einn. Enn er óvíst hvort breytingarnar verði innleiddar í ljósi þess að ríkisstjórn Joes Biden er á lokasprettinum og nýr landlæknir tekur senn við af Murthy.

Deila