Áfengisneysla er ekki einkamál einstaklingsins, hún hefur áhrif á heila, hjarta, geðheilsu, fjölskyldu og allt samfélagið, skrifa þær Valgerður Rúnarsdóttir og Lára G. Sigurðardóttir í kynningartexta um ráðstefnu á Læknaþingi 2026. Og þær halda áfram; „Ungur heili hefur ómótaðar taugatengingar og er því sérstaklega viðkvæmur fyrir áhrifum áfengis, á meðan eldri borgarar bregðast öðruvísi við vegna breytinga á líkamsstarfsemi og lyfjanotkun. Nú vitum við að áfengi er orsakaþáttur í 200 sjúkdómum og áverkum. Það veldur álíka mörgum dauðsföllum ár hvert og kórónuveirufaraldurinn á sínum tíma. Þrátt fyrir þessar staðreyndir finna margir enn fyrir samfélagslegum þrýstingi á að „fá sér einn“. Það otar enginn lengur að þér sígarettu, en annað gildir um áfengi þrátt fyrir að það sé skaðlegra fyrir sjálfan neytandann og allt samfélagið í samanburði við reykingar.“
Vestanhafs sýna kannanir að áhuginn á áfengisneyslu fari minnkandi, ekki síst meðal ungs fólks, komist í tísku að „djamma“ fyrri part dags án áfengis áður en haldið er til vinnu, einn vinsælasti bjórinn er áfengislaus. Getur verið að unga fólkið sé meira að hugsa um að vernda heilann og heilsuna?

„Í tilefni af Læknadögum þar sem áfengi er í brennidepli býður Læknafélag Íslands upp á málþingið „Skál fyrir betri heilsu“ 21. janúar 2026 kl. 20–22 í Silfurbergi í Hörpu og er aðgangur ókeypis. Þar koma saman læknar, fræðimenn og hugsuðir til að varpa ljósi á hvernig áfengi mótar líf okkar, heilsu og samfélag — allt frá æsku til efri ára. Á málþinginu spyrjum við spurninga sem snerta okkur öll: Er einn drykkur góður fyrir hjartað? Hvernig verður áfengi sjálfsagður hluti af tilverunni? Hvenær breytist notkun í fíkn? Og hvað með ömmu og afa — er „tár í tána“ skaðlaust á efri árum? Og er lífið glatað án áfengis?
Málþingið er opið öllum. Hvort sem þú drekkur, hefur drukkið eða velur að sleppa, þá snertir þetta okkur öll. Nú er tími til að skála — ekki fyrir fleiri glösum, heldur fyrir betri heilsu. Verið velkomin í Hörpu.“
