You are currently viewing Forvarnir flugfélaga; fólk drekki minna á flugvöllum

Forvarnir flugfélaga; fólk drekki minna á flugvöllum

Írska lággjalda­flug­fé­lagið Ry­ana­ir leggur til að reglur um áfeng­isneyslu verði hert­ar en þetta gerðist eft­ir að flugdólg­ur gerði allt vit­laust um borð í einni vél félagsins. Ry­ana­ir hef­ur kallað eft­ir því að yf­ir­völd inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins, tak­mark­an­i áfengiðneyslu farþega til að koma í veg fyr­ir að þeir verði um of drukkn­ir fyrir flug. Flugfélagið vill að fólk verði gert að sýna brott­far­ar­spjald þegar það kaupi sér vín á krám og börum í flugstöð. Starfs­fólkið held­ur því fram að vanda­málið sé ekki áfengi sem neytt er um borð held­ur áfeng­is­magnið sem inn­byrt er á flug­vell­in­um. Þekkt er t.a.m. að farþegar missi sig oft í áfeng­is­drykkju þegar flugi seink­ar og að eng­in tak­mörk séu á því sem fólk læt­ur ofan í sig.

Kröf­ur Ry­ana­ir um tak­mörk­un á neyslu áfeng­is má rekja til máls­höfðunar á hend­ur óþekkt­um ein­stak­lingi í þeirri viðleitni að sækja 15.000 evra kostnað til baka eft­ir að flug­vél á veg­um fé­lags­ins, frá Dublin til Lanzarote, var snúið við sök­um dólgsláta eins farþega í vélinni. Málið er rekið fyr­ir dóm­stól­um á Írlandi.

Flug­fé­lagið vill láta tak­marka drykkju farþega við tvo áfenga drykki í flugstöð fyrir flug.

mbl.is jan 25

Deila